Hér eru tenglar í ýmis bókasöfn.
Þeim er skipt í þrjá flokka:
- Innlend bókasöfn
- Erlend bókasöfn
- Önnur bókasöfn
Flest íslensk bókasöfn nota Gegni sem er samskrá íslenskra bókasafna. Í Gegni er allur safnkostur bókasafna skráður. Á leitir.is er hægt að nálgast upplýsingar um bækur, tímarit og greinar, rafbækur, hljóðbækur, tónlist, ljósmyndir, lokaverkefni háskóla, myndefni, vefsíður, fornleifar og muni.
Þar koma einnig fram ýmsar upplýsingar eins og t.d. í hvaða bókasöfnum viðkomandi efni er til og hvort það er til útláns.