Header Paragraph

Kveðjuhóf Bókasafns Menntavísindasviðs 8 maí kl. 16:00

Image
Tímamót - Hylurinn tæmdur
Image
Tímamót - Hylurinn tæmdur

Bókasafn Menntavísindasviðs á sér langa og merkilega sögu. Safnið var hluti af Kennaraskólanum allt frá stofnun hans árið 1908 og varð síðan mikilvægur þáttur í starfsemi Kennaraháskóla Íslands og Menntavísindasviðs Háskóla Íslands.

Nú í sumar lýkur sögu þess sem sjálfstæðs bókasafns því safnið verður þá sameinað Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni.

Að loknum prófum í vor verður húsnæði Bókasafns Menntavísindasviðs, Hylurinn í Hamri, tæmt og safnkostinum og starfsfólki fundinn nýr staður í Þjóðarbókhlöðu.

Í tilefni af þessum tímamótum verður haldið kveðjuhóf í Hylnum miðvikudaginn 8. maí kl. 16-18.

Verið hjartanlega velkomin en vinsamlegast skráið þátttöku hér.