Handbækur

Image

Handbækur

Í bókasafninu er úrval af handbókum og uppsláttarritum á sviði kennslu, uppeldis, umönnunar og þjálfunar auk ýmissa orðabóka. Handbókum er raðað með öðru efni á safndeildinni Skammtímalán og merktar með rauðu límbandi á kilinum.

Handbækur gefa gott yfirlit yfir rannsóknir á afmörkuðum sviðum og sýna fram á stöðu rannsókna (state of the art) við útgáfu þeirra auk þess má finna í þeim upplýsingar um helstu rannsakendur sviðsins. 

Auk þeirra handbóka sem eru í bókarformi á safninu hefur Menntavísindasafn einnig tryggt aðgang að fjölda handbóka á rafrænu formi sem má nálgast gegnum lbs.leitir.is eða með því að skoða flipann Uppsláttarrit sem er sýnilegur á flestum leiðarvísum námsgreina

 

Image
Skjáskot af uppsláttarritum í leidarvisar.is